crazyness in the brain of love:)
18.05.2006 21:59:23 / ingabeta

Titill

Jæja!! nú hef ég fréttir að færa! Og þær eru... ÉG ÚTSKRIFAST!!!

Fékk símtal frá Ingibjörgu skólameistara um það að ég hafi fengið heilan 1 í frönsku!! Ég er nátturulega alltaf númer 1!! En þar sem ég er svona rosalega dugleg og átti að útskrifast með 143 einingar og með alveg nó af einingum í kjörsviði ákvað Ingibjörg skólameistari að franskan mundi ekki vera á með á stúdentsskirteini mínu!! Þannig á endanum eftir mikil frönskuleiðindi fékk ég bara að sleppa við hana:)!!! Og þar af leiðandi næ ég öllu og útskrifast :)

Ég fékk annað símtal í dag ...mjög miklar upplýsingar sem ég fékk í dag! En þar sem ljósmóðir mín upplýsti mig um það í mæðraskoðun að ég væri með grunsamlegt þvag þurfti að skoða það eitthvað nánar. Ekki eru nú allir jafn heppnir og ég að vera með grunsamlegt þvag!! En svo fékk ég símtal frá henni í dag þess efnis að ég er með þvagfærasýkingu völdum kútsins. Sem betur fer eru einkenni þvagfærasýkingar á meðgöngu þannig að maður finnur ekki mikið eða bara alls ekki  fyrir henni, en ég sem sagt finn bara ekki neitt! Annað en Helga Lára greyið sem er með blöðrubólgu og finnur eða fann, áður en hún byrjaði að gleypa pillur, fyrir miklum sársauka:( En núna bara gleypi ég mínar pillur svo allt verði nú í lagi.

En jæja, nó um frönskudrama og þvagfærasýkingar!

 Vonandi bráðlega fer ég að opna aftur síðu kútsins og fara setja inn bumbumyndir. En síðan er www.kuturinn.barnaland.is


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 23:02:06 / ingabeta

Titill

..Lífið er eitthvað svo skrítið núna:S Veit ekki alveg hvað ég á að gera.. þori ekki..! Það er svo margt sem þarf að gera, og mér finnst það svo skrítið..

Enginn skilur þetta en það er líka bara allt í lagi;) hehe ég bloggaði þó!;)


» 15 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 22:43:41 / ingabeta

Titill

Jæja..

 1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin/nn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

Nú er bara að vita hvort einhver fari enþá á síðuna mína!


» 12 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 00:57:21 / ingabeta

Titill


.


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.09.2005 12:03:47 / ingabeta

Klukk!

Inga Klukkaði mig, ég ætlaði ekki að nenna þessu en þar sem ég er heima, sem gerist ekki oft og ekki búin að blogga lengi, þá get ég alveg eins bloggað um þetta eins og eitthvað annað! já! í alvöru já! :D

  • Ég er svöng, og ég sem ætlaði aldrei að borða aftur...
  • Ég hef átt geit! ..og svín líka! Hann var eiginlega bara eins og hundur, sprækasta svín sem ég hef vitað um! Og hún stóð á baðkeri...
  • Mér finnst kók vont, samt er ég alltaf að drekka það:S
  • Ég er að fara til London!:D ...á afmælinu hans árna:(
  • Ég er í bleikum hot pants;)

Jæja ég klukka Andreu, Helgu, Bryndísi, Önnu og Árna (hehe þú átt blogg;))


» 21 hafa sagt sína skoðun

29.08.2005 02:42:06 / ingabeta

bleh...!

Ég var að skoða blogg sem ég skrifaði fyrir einu til tveimur árum síðan. Það er alveg ótrúlegt hvað mér finnst ég hafa verið barnaleg þegar ég les þetta. Svo miklu barnalegri en ég er núna, þótt þetta sé nú ekki það langur tími í rauninni. Enda er ég ekki frá því að ég sé búin að upplifa alveg helling á þessum tveim árum og þroskast alveg slatta. Mér finnst ég vera orðin sú manneskja sem ég á eftir að vera í framtíðinni. Samt veit ég að það er svo ótrúlega margt sem ég á eftir að upplifa, en finnst samt eins og að ég eigi eftir að upplifa það eins og sú manneskja sem ég er orðin í dag. Samt er þetta svo flókið eitthvað. Kanski veit ég bara ekki neitt.

Það er alveg ótrúlegt hvað mér getur liðið vel inni í herberginu mínu. Hvað mér finnst þægilegt að sitja hérna bara ein að hlusta á tónlist með tölvuna og hugsa. Það er eitthvað svo kósý. Þegar það er dimmt úti og kveikt á ljósinu þá er birtan og litirnir hérna inni eitthvað svo notalegir. Svo liggur Korkukjáni á bakinu við hliðina á mér. Það er alveg eins og hún sé litla barnið mitt sem liggur hérna hjá mér. Hún er svo sæt.

Það var skírn í dag hjá Sunnu og Óttari. Lillasnús heitir Embla Sól. Mér finnst þetta nafn alveg rosalega fallegt, alveg jafn fallegt og hún. Það er nefninlega málið með nöfn. Sum nöfn finnst maður ekki falleg hreinlegar af því maður tengir það við manneskjur sem manni líkar ekki vel við. En svo eru það önnur nöfn sem eru svo falleg því það eru svo fallegar manneskjur sem eiga þau.

Ég er alveg svakalega djúp núna eitthvað. Ég er búin að hugsa svo mikið.

 

...and I don't think that I'll see her again, but we shared a moment that will last till the end.


» 30 hafa sagt sína skoðun

07.08.2005 07:27:50 / ingabeta

Kv. frá köben;)

Hæ hæ:D Vildi bara kasta hér kveðju frá köben!
Kom í gær og við erum í mjög svo lítilli en sætri íbúð, en þrögnt búa sáttir;) Finnst frábært að vera komin hingað en samt finnst mér svo skrítið að vera ekki í vinnunni:| Það er alveg ótrúlegt hvað ég get saknað þess8| Sem er kanski ekki það skrítið þar sem ég var þarna á hverri einustu nóttu! Ég og Andrea tókum svo þetta all svakalega lokadjamm heima. Það var gegt gaman en aldrei í lífinu hefði mér dottið í hug að það mundi enda eins og það endaði hehe:D Þetta var gegt sérstakt en líka alveg ótrúlega gaman:D
En núna er það bara afslöppun í kóngsins köben með einn öllara á kaffihúsi á strikinu;) Ætlum að hafa það svo notalegt saman en það var nátturulega alveg yndislegt að fá að hitta mömmu sína aftur:D Mér finnst bara að það eigi að koma hitabylgja hér eins og gerðist í fyrra þegar við komum hingað! Finnst það nátturulega bara sanngjarnt hehe:D
Ég sakna ykkra allra og þó það sé gott að koma hingað þá verður yndislegt að koma aftur heim til ykkar:D

» 11 hafa sagt sína skoðun

10.07.2005 09:54:03 / ingabeta

aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa

  1. Okey ... þetta er búið að vera mjöööög athyglisverð helgi og ég er alveg búin að fá... hmmmm... 2 ...vitiði það er svooooo gaman að vera ég að bara ég er að missa mig! nema ég er greinilega of feit! gaurinn sagði það sem var að reyna við andreu! bara spikið flýtur yfri buxnasgrenginn!!!  poor fet me! :(

» 38 hafa sagt sína skoðun

03.07.2005 10:24:11 / ingabeta

bull

Haha ...ég var að finna miða frá mér til mín sem ég skrifaði í 10 bekk haha þetta er svo fyndið!! Maður er svo ruglaður!:D Gegt sérstakt eitthvað, labbaði inn í herbergið mitt og hann var það fyrsta sem ég sá þótt hann var falinn... og ég nátturulega löngu búin að gleyma honum!!! En já ég veit ekkert hvort einhver hefur eitthvertíman fundið hann ...getur vel verið! En já þetta var samt alveg bara gaman að fá svona skilaboð til sín frá sjálfum sér:haha: ég veit ég er crazy! ...but you just have to exept that and love me just the way I am!!! Kanski ég geri bara svona aftur! ha! ha!

En já ...ég verð nú að viðurkenna að ég er orðin svolítið þreytt ...samt bara búin að vinna í 13 nætur sem er svosum ekki það mikið. Verður frábært samt ef ég fæ frí næstu helgi. bara svona aðeins til þess að teyja tærnar. Já! það er nefninlega það sem ég ætla að gera allan tíman! teyja tærnar! Það er nefninlega svo mikið hægt ..eða hvað? teygir maður tærnar? Allavega... núna er ég bara byrjuð að skrifa á fullu eitthvað bull. Fingurnar á milljón en heilinn dauður! Þannig þá kemur bara einhver steypa!

Mér finnst svo spúkí hvað það eru margir (2) sem vita eitthvað svona um mig sem þeir eiga alls ekkert að vita!!! Svona manneskjur sem ég þekki EKKI NEITT þúst hef varla talað við! ...en já þó veit einn eitthvað sem mér finnst samt ógeðslega persónulegt og voða fáir vita ..bara eitthvað ...okey kanski nokkrir enda er ég ekkert lokaðasta manneskja í heimi but you see my fk point!! Þúst ég mundi ekki einu sinni hvað manneskjan hét! Og samt spurði hún mig allt í einu út í þetta bara svona sísona! okey það veit svona enginn hvað ég er að tala um ...en það er líka bara allt í l lagi:klikk:

hahaha ég er búin að vera pæla svolítið í einu ...sko þið verðið að skilja að ég er á NÆTURVÖKTUM ..þá verður maður svolítið ruglaður! en já ég var að pæla í því að blogg einhvertíman þegar ég er bara veistit!! hahahah það á örugglega eftir að vera ógesslega skemmtilegt blogg því ég er líka svo skemmtileg þegar ég er drukkin;) hehe ..allavega segja það allir!!

En já ...he\'s a player, fine by me ...I\'M A PLAYER!


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.06.2005 13:22:35 / ingabeta

hmmm... hahahaha!

Ég er búin að vera svolítið mikið ein með sjálfri mér núna þar sem ég er á næturvöktum. Það kemur þó ekki í veg fyrir það að það er oft mjög svo  gaman hjá mér og allt í einu skelli ég upp úr þó ég sé bara alein. Hahaha ég get allavega skemmt sjálfri mér ágætlega vel og það er bara fyndið að rifja upp ýmsa hluti sem ég hef gengið í gegnum!

Ég get allavega hlegið núna af öllu strákaveseninu sem ég hef gengið í gegnum! hahahah eins og Akureyrarferðin!! Jesús hvað það var gaman!! og allt sem gerðist!! hahahaha þó það var kanski ekki allt mjög skemmtilegt þá, þá finnst mér það ekkert smá fyndið núna! hahaha Eins og bömmerinn sem ég og Minney vorum á í rútinni á leiðinni, nefni ekki ástæðuna hér en þetta er ekkert smá fyndið svona eftir á! Líka þegar ég og Linda fórum út á lögreglustöð því ég týndi kortinu mínu og var búin að öskra á dyraverðina á sjallanum því ég gat ekki sýnt þeim skilríki. haha og við fengum far með gaurnum sem hafði dælt í okkur bjór kvöldið áður:haha: Nema hvað, ég hélt að það væri vinur Svenna og fór að tala við hann um eitthvað sem gerðist um morguninn og greyið strákurinn vissi nátturulega EKKERT hvað ég var að tala um!! hahahaha. Ég alveg "já manstu ekki!" hann alveg "ha? neeeei":S Ég alveg "jú!! manstu ekki!" haha svo komum við á löreglustöðina þar sem ég fór að grenja því ég var svo pirruð út af þessu með að þeir hleyptu mér ekki inn! hmmm... ég meina ég ætlaði að hitta Svenna þar! En hversu sorgleg var ég orðin þá ...grenjandi fyrir framan lögguna!:haha: En ég og Linda rifumst aðeins í lögregluþjóninum. haha þangað til hann spurði mig um kennitöluna mína og ég sagði honum hana. Svo kom hann til baka með afrit af þjóðskrá og sagði að það væri ekkert skrítið að ég væri grátandi þar sem ég hefði verið eftirlýst um dagin!! hahahahaaha ...þarna hló ég sko í gegnum tárin! Svo brunaði gaurinn með okkur aftur á Sjallan þessi elska haha sem var búin að bíða allan tíman fyrir utan með fullt af fólki inn í bílnum, enda var einn yfirfarþegi þegar ég og Linda bætumst í hópinn! hahah svo hreytti ég blaðinu í dyraverðina og labbaði inn!! hahah með ekkert smá mikla stæla!8) hahahha Svo...:

..."má ég segja þér svolítið?" .."já".. "þú ert svo sæt!"

 ..."má ég segja þér svolítið?" .."hvað?".. " þú ert svo sæt!"

..."má ég segja þér svolítið?" ..."Hvað er ég sæt?!"... "Þú ert svo sæt"

hahahhahahahha þetta var að verða vandræðalegt!!

 
Þetta er bara hluti af all the crazyness sem er í gangi í hausnum á mér þegar ég stend einhverstaðar skelli hlæjandi þó það sé ekki sála nálægt! ...en hvernig ætti maður að geta lifað án þess að geta skemmt sjálfum sér?? Rifjað upp allt það skemmtilega, neyðarlega, fyndna, fáranlega sem hefur hent mann í gegnum árin!  

Jæja ég kveð að sinni og ef þið viljið hitta mig þá er það bara 10-11 takk fyrir!!!:frown:


» 63 hafa sagt sína skoðun

11.06.2005 09:42:52 / ingabeta

...

It’s the time you leave me I start losing control, you’re walking away with my Heart and my soul...

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.05.2005 01:27:18 / ingabeta

Circle



Me, I'm a part of your circle of friends
and we notice you don't come around
Me, I think it all depends
on you touching ground with us.
But, I quit. I give up.
Nothing's good enough for anybody else
it seems.
And I quit. I give up.
Nothing's good enough for anybody else
it seems.

And being alone
is the best way to be.
When I'm by myself it's
the best way to be.
When I'm all alone it's
the best way to be.
When I'm by myself
nobody else can say goodbye.

Everything is temporary anyway.
When the streets are wet --
the color slip into the sky.
But I don't know why that means you and I are
- that means you and....
I quit -- I give up.
Nothin's good enough for anybody else it seems.
But I quit. I give up.
Nothing's good enough for anybody else it seems.

And being alone
is the best way to be.
When I'm by myself it's
the best way to be.
When I'm all alone it's
the best way to be.
When I'm by myself
nobody else can say...

Me, I'm a part of your circle of friends
and we notice you don't come around.


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.05.2005 00:16:33 / ingabeta

...

Ég er svo stressuð:( ég er að fara í frönskupróf á morgun ..þorði ekki að fara í það þegar það var og ekki þori ég mikið meira í það núna! ...Veit alveg að ég er fallin:( Ætla að reyna að fá að taka þetta upp sem fall en það er ekki einu sinni víst að ég nái sögunni og íslenskunni:(  og hvað þá?

Þetta er búið að vera alveg hrillilega önn líka! ...ég er búin að vera í fögum sem ég hef svo alls ekki áhuga fyrir! Og það ýtti svo ógeðslega á skólaleiðann minn sem háði mig  þessa önn að ég var bara í ruglinu!! Kanski fékk ég líka skólaleiða út af því..:S

Annars er mér búið að líð ömurlega núna eins og þeir sem umgangast mig hafa vel tekið eftir!! ...búin að vera ekkert smá fúl og pirruð:( Stressuð út af skólanum, pirruð út af vinnunni og ekki bætti það að Inga var úti svo það var einum færri sem hægt að var að væla utan í! Enda er hún besti vasaklúturinn;) hehe:) Ég meina ég sem er alltaf svo hress og ánægð ha! puff! ...það er allavega ekki svo gaman að vera ég í augnablikinu! En þetta á eftir að lagast þegar ég er búin að leysa þetta með skólan og komin í sumarfrí! ...Annars finnst mér mjög líklegt að ég þurfi að taka endurtökupróf í allavega sögu ef ég tek frönskuna upp sem fall það er að segja EF ég fæ 5 eða hærra í meðaleinkunn sem er ekkert endilega víst einu sinni!

Ég veit samt ekki hvað ég mundi gera ef ég fengi ekki að halda áfram í Kvennó! ...Ég elska þennan skóla og þessi yndi sem ég er með í bekk. Ég mundi pottþétt halda áfram að mæta í tíma þótt ég væri ekki einu sinni í skólanum! hehe mundi samt alveg sofa yfir mig svona nokkrum sinnum;) en samt mæta!!:)

jæja  ..je suis petit perdant!
Au revior!


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.05.2005 20:47:03 / ingabeta

...

Ég og andrea ætlum að fara og busla í sjónum!:D


» 22 hafa sagt sína skoðun

07.05.2005 23:47:27 / ingabeta

Prófið þetta!!!

www.yoursexappeal.com/test.php?test=211501

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4